Umhverfisstefna UMFÍ
Umhverfisstefna UMFÍ
Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) hefur að einkunnarorðum Ræktun lýðs og lands. Ungmennafélagshreyfingin hefur það markmið að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum á Íslandi. UMFÍ hefur skilning á þeim áhrifum sem maðurinn hefur á umhverfið og leitast við að draga úr neikvæðum áhrifum sem hann kann að hafa sem og að ná betri árangri á sviði umhverfisverndar í allri starfsemi hreyfingarinnar. Hreyfingin skal enn fremur stuðla að jákvæðum áhrifum á umhverfið með landgræðslu, skógrækt og umhverfisvernd. UMFÍ leggur áherslu á að efla almenna umhverfis vakningu innan hreyfingarinnar.
Almenn markmið UMFÍ og sambandsaðila
Allt starf UMFÍ og sambandsaðila ætti að stuðla að jákvæðum áhrifum á umhverfið og draga úr neikvæðum áhrifum sem mannleg umsvif kunna að hafa á það.
Leiðir að markmiði:
Við skipulag á viðburðum á vegum hreyfingarinnar skal tekið mið af umhverfissjónarmiðum UMFÍ.
Leiðir að markmiði:
Í skrifstofuhaldi og almennri starfsemi UMFÍ skal leitast við að nota þær fjölmörgu leiðir sem viðurkenndar eru til að draga úr neikvæðum áhrifum sem starfsemin kann að hafa á umhverfið.
Leiðir að markmiði:
Samþykkt á 49.sambandsþingi UMFÍ 2015.

- Hvetja félagsmenn til að samnýta bíla í ferðum á íþróttaæfingar og aðra viðburði.
- Stuðla að því að setja upp sorpflokkun þar sem starfsemi félaganna fer fram.
- Hvetja til umhverfissparandi aðgerða í rekstri á skrifstofum, svo sem með því að spara pappír, slökkva ljós og á öðrum raftækjum þegar þau eru ekki í notkun.
- Að sambandsaðilar UMFÍ leggi sig fram við að auka umhverfisvitund félagsmanna sinna, meðal annars með aukinni útivist og tómstundaiðkun í
- Hvetja félagsmenn til að nýta matvæli og efni á hagkvæman máta og draga þannig úr sóun.
Við skipulag á viðburðum á vegum hreyfingarinnar skal tekið mið af umhverfissjónarmiðum UMFÍ.
Leiðir að markmiði:
- Á viðburðum á vegum hreyfingarinnar skal allur úrgangur flokkaður eftir því flokkunarkerfi sem er í viðkomandi sveitarfélagi.
- Umhverfissjónarmið skulu höfð að leiðarljósi við innkaup á vörum í tengslum við alla viðburði.
- Á viðburðum á vegum hreyfingarinnar skal lagt upp með að efla umhverfisvitund þátttakenda.
- Stefnt skal að því að draga úr notkun pappírs á þingum með rafrænu aðgengi að gögnum.
- Virða ber þolmörk umhverfis við skipulagningu viðburða og grípa til aðgerða ef þörf krefur svo sem með umferðarstýringu, jafnt fyrir gangandi sem og akandi vegfarendur.
Í skrifstofuhaldi og almennri starfsemi UMFÍ skal leitast við að nota þær fjölmörgu leiðir sem viðurkenndar eru til að draga úr neikvæðum áhrifum sem starfsemin kann að hafa á umhverfið.
Leiðir að markmiði:
- Við öll innkaup skal taka tillit til umhverfissjónarmiða. Leitast skal við að velja vörur með viðurkenndum umhverfismerkingum og takmarka notkun á einnota varningi.
- Ræstivörur skulu hafa viðurkennda umhverfismerkingu og fara skal sparlega með efni við þvott og ræstingar.
- Pappírsnotkun skal vera í lágmarki, prenta báðum megin á blöð þegar það á við, gæta þess að prenta og ljósrita ekki að óþörfu og endurnýta eins og hægt er.
- Allur úrgangur skal flokkaður eftir ýtrasta flokkunarkerfi sem boðið er upp á í viðkomandi sveitarfélagi. Spilliefnum, raftækjum og öðrum úrgangi sem mögulega fellur ekki undir flokkunarkerfi skal fargað á viðeigandi hátt.
- Spornað skal við óþarfa orkunotkun. Slökkva ljós og á raftækjum að notkun lokinni og stuðla að jöfnum hita innandyra.
- Sparlega skal farið með vatn og það ekki látið renna að óþörfu.
- Hafa almenn umhverfissjónarmið að leiðarljósi við skipulag reksturs.
Samþykkt á 49.sambandsþingi UMFÍ 2015.